Canon RF 400mm 2.8L IS USM

SKU 5053C005AA Catagories , , Tags , , , ,

Þessi vara er eingöngu sérpöntuð og er verð aðeins gefið upp til viðmiðunar. Hafi samband fyrir nánar upplýsingar. 

Out of stock

Price

2.290.900 kr.

Description

Canon RF 400MM F2.8L IS USM er há-afkasta ofur aðdráttarlinsa sem skilar leiðandi myndgæðum í þessum flokki af linsum og er auk þess mjög meðfærileg. Linsa sem er hönnuð fyrir íþrótta- og náttúrulífsljósmyndun – þegar þú þarft að halda fjarlægð við viðfangsefnið.

Fangaðu þínar bestu náttúrulífs- og íþróttamyndir með þessari meðfærilegu 400mm linsu sem er byggð fyrir RF myndavélar. Hraðvirkt f/2.8 ljósop og optísk hristivörn, IS, gera þessa linsu frábæra við léleg birtuskilyrði. Háþróað sjálfvirkt fókuskerfi, AF, heldur viðfangsefni á mikilli ferð algjörlega skörpu og þú færð mögnuð myndgæði.

Framúrskarandi myndgæði
Á hámarks f/2.8 ljósopi þá er skerpan ótrúleg í gegnum allan rammann vegna Fluorite og Super UD glerja auk ASC og Super Spectra klæðninga.

Hraðvirkur fókus
Þegar þú ert að fanga hröð viðfangsefni þá fókusar linsan á hraðan og nákvæman hátt. Fókusdrifið skilar svo hraðvirkari sjálfvirkum fókus með samhæfðum myndavélum.

Lítið ljós? Ekkert mál
RF 400mm F2.8L IS USM er frábær í litlu ljósi með stóru f/2.8 hámarks ljósopi og hristivörn sem skilar 5.5 stoppum til að koma í veg fyrir hreyfðar myndir.

Léttasta 400mm f/2.8 linsan á markaðnum
Léttasta 400mm f/2.8 linsan á markaðnum fyrir spegillausar myndavélar og því auðvelt að taka hana með þér. Handvirkur fókus gerir þér kleift að stilla fókus og svo er auðvelt að nálgast AF start/stop hnappana.

Alvöru byggingagæði
L línu byggingargæði sem ljósmyndarar hafa treyst á til fjölda ára og þú getur notað þessa linsu í hvaða veðri sem er, hvort sem er í rigningu á fótboltaleik eða í sandfoki.

Eiginleikar með 1.4x Extender:
Brennivídd: 560mm
Hámarks ljósop: 4-25
Sjálfvikur fókus mögulegur: Já
Hristivörn: Já

Eiginleikar með 2x Extender:
Brennivíkdd: 800mm
Hámarks ljósop: 5.6-64
Sjálfvikur fókus mögulegur: Já
Hristivörn: Já Physical Specifications

Þyngd: 2890 gr.

Eftirfarandi fylgir með: Lens Dust Cap RF, Drop-In Screw Filter Holder 52 (WIII) með 52mm Protect filter, Lens Cap E-180E, Lens Hood ET-155 (WIII), Lens Soft Case LS400, Lens Wide Strap B, notendahandbók.

en_USEnglish