Canon RF 70-200mm 4L IS USM

SKU 4318C005AA Catagories , , Tags , , , ,

Out of stock

Price

329.900 kr. 296.910 kr.

Description

Vertu lipur og sveigjanleg(ur) með Canon RF 70-200mm F4L IS USM og náðu ávallt skotinu. Með hentugri 70-200mm brennivídd þannig að þessi linsa er ótrúlega fjölhæf fyrir alls konar viðfangsefni, allt frá portrett ljósmyndun yfir í náttúrulífsljósmyndun.

Með föstu f/4 ljósopi í gegnum allt aðdráttarsviðið þannig að þú færð magnað bokeh á stærta ljósopi sem er frábært þegar þú vilt aðskilja viðfangsefnið frá annaðhvort forgrunni eða bakgrunni.

L línu myndgæði skila framúrskarandi skerpu horn í horn og 5 stoppa optísk hristivörn tryggir að verulega er dregið úr hristing þegar þú ert að skjóta handhelt.

Í rigningu eða sól þá skilar þessi netta aðdráttarlinsa ávallt framúrskarandi myndum og þá tekur hún ekki mikið páss í myndavélatöskunni.

· Tilvalin linsa fyrir ferðalög, íþrótta- og náttúrulífssljósmyndun vegna stærðar og þyngdar.
· Atvinnufólks eiginleikar í nettri linsu og tekur lítið pláss í töskunni.
· Air Sphere Coating og fjögur UD gler leiðrétta skekkjur og 9 blaða iris og fast f/4 ljósop veita framúrskarandi bokeh, jafnvel á stystu fókuslengd sem er 0.6 m.
· Hönnuð fyrir stöðuga handhelda ljósmyndun með 5 stoppa optískri hristivörn.
· Dual Nano USM mótorar skila ótrúlega hröðum og næstum því hljóðlausum samfellandi fókus sem er frábært fyrir ljósmyndun og vídeó.
· L línu linsa með verndarklæðningum og flúor klæðningum til að vernda hana gegn ryki og raka.

Eftirfarandi fylgir með:
Linsulok, E-77
Húdd, ET-83G
Lok að framan og aftan
LP1319 taska

en_USEnglish