Vörulýsing
Notuð Canon EOS 10D
ATH!
- Notaðir hlutir seljast ávalt í því ástandi sem þeir eru.
- Ekkert fylgir með annað en það sem sést á myndum eða kemur fram undir reitnum „Fylgihlutir“ hér að neðan.
- Myndirnar eru af hinum eiginlega hlut sem boðin er til sölu.
- Kaupanda ber að skoða myndir, lesa vel yfir ástandslýsingu og einnig bendum við á Fyrirkomulag umboðssölu og Almenna söluskilmála
Aldur:
Ekki vitað en þessi gerð af myndavél var framleidd á árunum 2003-2004.
Ástand:
Vélin er gömul og ber þess merki að vera mikið notuð. Horn og brúnir eru víða orðin rispuð og snjáð í gegnum upprunalegu áferð vélarinnar. Nudd og rispur eru greinileg á skjágleri. Engu að síður hefur vélin verið hreinsuð, yfirfarin og prófuð í lagi.
Fylgihlutir:
- Canon Body lok
- Canon Hálsól
- Canon Hleðslutæki
- Upprunaleg rafhlaða. Rafhlaðan virkar en er orðin afar léleg og heldur sáralítilli hleðslu. Kaupandi ætti að íhuga að kaupa nýja.