Canon EOS R7 með 18-150mm linsu

Vörunúmer 5137C010 Flokkar , , Tags , , , , , , , ,

1 á lager

Verð :

339.900 kr. 305.910 kr.

Vörulýsing

EOS R tæknin mætir hönnun APS-C – spegillaus myndavél sem er nett, hraðvirk og öflug.

Canon EOS R7 er afar háþróuð myndavél í EOS R kerfinu og er hönnuð fyrir áhugaljósmyndara sem vilja auka sína getu til að skapa. Afar hraðvirk myndavél – frábær myndavél fyrir íþrótta- og náttúrulífsljósmyndara – og APS-C myndflaga myndavélarinnar færir þig nær viðfangsefninu.

EOS R7 er framhald magnaðrar arfleifðar EOS 7D línunnar og pakkar nýjustu tækni og miklum hraða inn í næstu kynslóð EOS R línunnar.

· Dual Pixel CMOS AF II fókustækni sem greinir og eltir fólk, dýr og farartæki, bæði í ljósmyndun og vídeó.
· Tekur 15 ramma á sek. með mekanískum lokara og þú færð ótrúlegan hraða og hágæða ljósmyndir.
· Tekur 30 ramma á sek. með rafænum lokara til að fá enn meiri hraða og hljóðlausa myndatöku.
· 4K/30p hágæða vídeó sem er oversampled úr 7K.
· 4K/60p til að fá meiri mýkt.
· 32.5 megapixla APS-C myndflaga sem er frábær blanda fyrir upplausn, hraða og góð afköst við léleg birtuskilyrði.
· Innbyggð hristivörn. 7 stoppa hristivörn með Canon RF linsum. 8 stopp með ákveðnum RF linsum.
· -5EV tryggir nákvæman fókus við léleg birtuskilyrði.
· Ljósmyndir í allt að ISO 32,000 og vídeó í allt að 12,800. Hægt að auka í ISO 51,200 í ljósmyndun og ISO 25,800 í vídeó.
· 2.36 milljón punkta sjóngluggi, EVF.
· DIGIC X örgjörvi frá Canon tryggir hraða virkni og lágmarks seinkun í sjónglugganum.
· image.canon til að hlaða efni beint með Wi-Fi í skýjaþjónustu.
· 7.5 cm 1.62 milljón punkta hreyfanlegur snertiskjár.
· YouTube live streaming og þú getur verið með beina útsendingu á YouTube rásinni þinni.
· Notar Canon LP-E6NH rafhlöðu.

Canon RF-S 18-150mm F3.5-6.3 IS STM linsa fylgir með

Uppfærðu úr DSLR myndavélinni þinni á einfaldan hátt þar sem Canon breytistykki, Mount Adapter EF-EOS R, tryggir að þú getur notað núverandi EF og EF-S linsur og fengið sömu gæði, afköst og virkni með EOS R7. Breytistykkið fylgir ekki með.

Næsta kynslóð af sjálfvirkum fókus með gervigreind
EOS R7 er búin gervigreindartækni og iTR AF tækni sem er einnig í EOS R3, EOS R5 og EOS R6 myndavélunum. Þetta þýðir að myndavélar greinir fólk, dýr og farartæki og heldur þeim í hnífskörpum fókus hvar þau hreyfast í rammanum.

Náttúrulífsljósmyndarar munu elska hvernig myndavélin þekkir fugla á flugi og heldur þeim skörpum á meðan þeir eru á flugi í landslaginu.
Íþróttaljósmyndarar munu elska möguleikann að elta fólk á meðan það hreyfist hratt og á ófyrirsjáanlegan hátt – jafnvel þegar það er með hjálm eða þegar það lítur í aðra átt.
Dual Pixel CMOS AF II fókuskerfið í EOS R7 fylgir og eltir viðfangsefni 100% í rammanum og tryggir hraðvirkan og nákvæman sjálfvirkan fókus, líka þegar tekur að dimma eða alveg niður í -5EV eða með ljósopi sem er aðeins f/22.

7 stoppa hristivörn
Ímyndaðu þér að geta skotið myndir á löngum lýsingartíma handhelt, án þess að nota þrífót, eða að fanga magnað vídeó þegar þú gengur með myndavélina. Innbyggð hristivörn, IBIS, í EOS R7 veitir þér nýjar leíðir til sköpunar og mun jafnvel fá þig til að hugsa um hvernig þú getur nýtt myndavélakerfið þitt enn betur.
7 stoppa hristivörn er byggð á staðlaðri CIPA mælingu með RF-S 18-150mm F3.5-6.3 IS STM á 150mm brennivídd.

is_ISIcelandic