Vörulýsing
Canon RF 28-70mm f/2L USM er háþróuð L-línu aðdráttarlinsa sem er búin mjög hraðvirku f/2 ljósopi og skilar óviðjafnanlegum myndgæðum.
RF 28-70mm f/2L USM setur ný viðmið í ljósmyndun þar sem hún skilar myndgæðum sem þú býst við að fá úr fastri, prime, linsu auk þess sem hún er með f/2 ljósopi sem veitir þér meiri möguleika í þinni sköpun.
Ferðaljósmyndun
Ferðastu með eina aðdráttarlinsu sem sparar pláss. Fjölhæf 28-70mm brennivídd er gagnleg fyrir mörg viðfangsefni, allt frá landslagi yfir í portrett, fine art og götuljósmyndun.
Brúðkaupsljósmyndun
Starfaðu hratt og hljóðlega við margvíslegar aðstæður. RF 28-70mm f/2L USM er með f/2 hámarks ljósopi sem gerir þér kleift að stjórna dýptarskerpu í portrett myndum og fanga umhverfið í lítilli birtu.
Fréttaljósmyndun
RF 28-70mm f/2L USM er fljót að þysja til að fanga mikilvæg augnablik. Fókusaðu og taktu myndir í lélegri birtu og vertu örugg/ur með L-línu gæði Canon, jafnvel í slæmu veðri.
- Stærsta ljósop: f/2, 9 blaða.
- Bygging linsu: 19 gler í 13 hópum.
- Hraðvirkur fókus og næstum því hljóðlaus með hringlaga USM AF mótor.
- Stysta fókusfjarlægð: 0.39m.
- Fjarlægðarupplýsingar: Já.
- Hluti af L línu Canon og er varin gegn ryki og raka.
- Stillanlegur Lens Control hringur veitir beinan aðgang að stillingummyndavélarinnar.
- Eftirfarandi fylgir með: Lens Cap E-95, Lens Dust Cap D1, Lens Hood EW-103E, Poki LP1424.